← Öll verk
1 / 6
Rafhúðun · lýsing · rimlaþil
Hótel Keflavík — veggljós og ofnahlífar
Fyrir Hótel Keflavík smíðuðum við veggljós: grind af þríhyrningum með HK-merki hótelsins í miðju, utan um langa lóðrétta ljósaperu. Grindin var rafhúðuð í baði verkstæðisins — koparhúðuð og síðan gullhúðuð — og speglaslípuð. Fyrir fimm stjörnu svítur hótelsins smíðuðum við einnig ofnahlífar: dökkblá rimlaþil þar sem hver rimill er kantaður með þunnri gylltri brún, svo hlífin verður hluti af innréttingunni frekar en tæknilausn. Myndirnar sýna verkin á verkstæðinu og í rafhúðunarbaðinu.
EfniRafhúðun — kopar og gull; lökkuð rimlaþil með gylltum brúnum
UmfangFramleiðsla · Rafhúðun
RýmiHótel Keflavík
Ertu með svipað verkefni í huga?