Fundarherbergi með sjávarútsýni

Sólarfilmur — ráðgjöf og uppsetning

Betri birta, minni hiti og vörn gegn UV-geislun.

Sólarfilmur draga úr glýju og hita án þess að myrkva rýmið. Rétt val á filmu skiptir máli — við tökum mál og ráðleggjum filmu sem hentar gleri, notkun og birtu.

Ávinningur
—Minni glýja án þess að myrkva
—Lægri hiti í sólríkum rýmum
—UV-vörn fyrir húsgögn og gólf
—Betri vinnuaðstaða við glugga
—Fyrir skrifstofur, heimili og verslanir
Fá ráðgjöf
Algengar spurningar
Hvað gerir sólarfilma?

Hún dregur úr hita og glýju frá sólinni og síar UV-geisla sem upplita húsgögn og gólf — án þess að myrkva rýmið.

Myrkvar sólarfilma rýmið?

Nútímafilmur halda birtunni að mestu; það eru ljósar og nær ósýnilegar útgáfur jafnt sem dekkri. Við ráðleggjum um rétta filmu fyrir gluggann.

Hentar sólarfilma bæði heima og á skrifstofu?

Já. Hún er sett á glugga heimila, skrifstofa, verslana og sólstofa — mæld og sett upp af okkur.

Byrjaðu á teikningum, myndum eða málum.

Sendu teikningar, myndir, mál eða grófa hugmynd. Við förum yfir verkefnið og mælum með næsta skrefi.