Clipso strekkiloft og lýsing
Fullkomlega slétt loft með innbyggðri hljóðvist — ekkert múrverk, engin málning, lágmarks ryk.
Clipso-dúkur deyfir bergmál, felur ójöfnur og fæst í fjölda litatóna. Við sameinum hann einnig sérsmíðuðum CNC-hljóðvistarpanelum og innfelldri eða baklýstri lýsingu.
Strekkiloft með lýsingu og hljóðvist
Clipso strekkiloft er dúkur sem er strekktur í prófíla við loftbrún og myndar fullkomlega slétt loft án múrvinnu, spörslunar eða málningar. Það felur ójöfnur, lagnir og gamlar viðgerðir og fæst með innbyggðri hljóðvist sem deyfir bergmál í opnum rýmum, fundarherbergjum og veitingastöðum.
Loftin fást í fjölda litatóna, baklýst og prentanleg. Við fellum LED-lýsingu, kastara og lampa inn í hönnunina og setjum loftið upp á broti af þeim tíma sem hefðbundin loftavinna tekur — með lágmarks ryki og raski.
Við setjum loftin upp sjálf og kaupum efnið af umboðsaðila Clipso á Íslandi. Strekkiloft hentar jafnt í nýbyggingar og eldri hús þar sem loftið er úr lagi.
Hvað er strekkiloft?
Dúkur sem er strekktur í prófíla við loftbrún og myndar slétt loft án múrvinnu. Hann felur ójöfnur og lagnir og fæst með hljóðdempun.
Hentar strekkiloft í eldri hús?
Já, sérstaklega þar. Það hylur skemmd eða ójöfn loft og bætir hljóðvist án þess að rífa gamla loftið.
Er hægt að setja lýsingu í strekkiloft?
Já. Kastarar, LED-borðar og lampar eru felldir inn í hönnunina, og loftið er einnig fáanlegt baklýst.
Byrjaðu á teikningum, myndum eða málum.
Sendu teikningar, myndir, mál eða grófa hugmynd. Við förum yfir verkefnið og mælum með næsta skrefi.


