← Allar færslur
Verkefni

Sumarhús — áður og eftir

LED-lýstur stigi og rimlaveggur í sumarhúsi

Húsið kom til okkar sem berir bjálkaveggir, grænt gólf og gamall furustigi. Verkefnið var að innrétta það í heild — ekki eitt herbergi í einu heldur eina heild þar sem eldhús, stigi, baðherbergi og skápar tala saman. Hönnunin var unnin í samvinnu við eigendur.

Rimlaveggurinn, sex metra langur, tengir hæðirnar og felur stigann að hluta. Stiginn fékk LED-lýst þrep, CNC-fræsta flísaklæðningu á vegginn og askhandrið sem var mótað í þrívídd. Eldhúsið fékk eyju og innfellda lýsingu, baðherbergin marmarafilmu og svartar glersturtur; steinborðplötur voru aðkeyptar.

Myndirnar í verkefninu sýna hvert skref: bjálkaveggina árið 2022, rimlavegginn í vinnslu og fullbúið húsið.

Preiss Workshop — Mosfellsbær
Næsta færsla
Bílskúr verður íbúð
→
Tengd verk
Ertu með svipað verkefni í huga?