← Allar færslur
Verkefni

Gamlar hurðir — nýtt útlit með filmu

Gangur með filmuklæddum hurðum og körmum í ljósri viðaráferð

Hurðirnar voru heilar en appelsínugul eikaráferðin passaði ekki lengur við nýtt gólf og innréttingar. Að skipta út hurðum og körmum þýðir múrbrot, málningu og nýjar hurðir á fullu verði. Filman er hin leiðin.

Hurðablöðin voru tekin af, hreinsuð og grunnuð. Ljós viðaráferðarfilma var hituð og felld yfir blöðin og karmana — líka hurðina með glerinu — og brúnirnar felldar undir svo engin sýnileg samskeyti eru. Svartar höldur settu punktinn yfir i-ið.

Kantfrágangurinn er það sem ræður endingunni: rétt undirbúið og fellt undir brúnir situr filma árum saman á hurð. Verkefnið er í heild á verkasíðunni.

Preiss Workshop — Mosfellsbær
Næsta færsla
Glerfilmur hjá Sidekick
→
Tengd verk
Ertu með svipað verkefni í huga?