← Allar færslur
Efni og aðferðir

Gullhúðaðir stafir — frá þrívíddarprentun að 24k gulli

Gullhúðaðir stafir á dökkum viðarvegg

Stafirnir sem líta út eins og gegnheill málmur eru það ekki: þeir eru þrívíddarprentaðir úr resíni og síðan húðaðir á verkstæðinu, lag fyrir lag, þar til yfirborðið er 24 karata gull, speglaslípað.

Prentaðir stafirnir eru slípaðir í stigum og gerðir leiðandi. Fyrst fá þeir koparlag með rafmótun (electroforming), sem gefur þeim styrk og slétt yfirborð, svo nikkelhúð og loks 24 karata gullhúð. Útkoman er léttur stafur með áferð gegnheils málms.

Rafhúðuð áferð heldur gljáa og lit mun lengur en máluð eða spreyjuð yfirborð, og stafirnir eru léttir að festa á hurðir, veggi og skilti. Sama aðferð er notuð á skápanúmer og ljósagrindur.

Preiss Workshop — Mosfellsbær
Næsta færsla
Gyllt kassettuloft í veislusal
→
Tengd verk
Ertu með svipað verkefni í huga?