← Allar færslur
Verkefni

Forstofuinnrétting með baklýstum spegli

Forstofuinnrétting með baklýstum lífrænum spegli

Forstofuinnrétting fyrir einkaheimili: hár skápur, svífandi borð og baklýstur spegill með lífrænu formi. Innréttingin er hönnuð af BK decor (Begga Krummer) og smíðuð og sett upp af Preiss Workshop.

Spegillinn er fræstur á CNC eftir teikningu hönnuðarins og lýsingin felld í bakhliðina þannig að ljósið dreifist jafnt á vegginn án þess að perur eða borðar sjáist. Borðið hangir á földum festingum og engir vinklar sjást.

Verkefnið sýnir hvernig við vinnum með hönnuðum: teikningin kemur frá þeim — tæknileg útfærsla, fræsun, smíði, yfirborðsfrágangur og uppsetning frá okkur.

Preiss Workshop — Mosfellsbær
Næsta færsla
Baðveggur sem lítur út eins og nýr — sex árum síðar
→
Tengd verk
Ertu með svipað verkefni í huga?